Skip to content
13. mars 2026

Nýr forstöðumaður sölu hjá Landfara

Ásgrímur Helgi hefur hafið störf sem forstöðumaður sölu hjá Landfara

Áki nýráðinn forstöðumaður landfara

Ásgrímur kemur til Landfara frá A4 þar sem hann hefur starfað sem sölustjóri frá 2022. Á árunum 2015 – 2019 starfaði Ásgrímur hjá Öskju sem sölustjóri Mercedes-Benz fólksbíla ásamt því að sitja í framkvæmdastjórn Öskju.

"Ráðning Ásgríms er stórt skref fyrir Landfara. Hann hefur áratuga reynslu af sölustjórnun og hefur sýnt fram á framúrskarandi árangur bæði hjá Öskju og A4. Við teljum að reynsla hans af uppbyggingu söluteyma og sterk tengsl í atvinnulífinu muni skipta miklu máli þegar við höldum áfram að efla starfsemi okkar og þjónustu við viðskiptavini.“
Eiríkur Þór Eiríksson framkvæmdastjóri Landfara.

Ásgrímur hefur víðtæka reynslu af sölumálum eftir að hafa starfað meira og minna við sölu síðan um aldamót. Hann hóf störf hjá Vátryggingafélagi Íslands 1999, fyrst sem lánafulltri í bílalánadeild. Hann starfaði í markaðsdeild Vátryggingafélags Íslands 2005 – 2008 en tók þá við sem sölustjóri VÍS og gengdi því starfi til 2015 þegar hann flutti sig yfir til Öskju.

„Það er virkilega gaman að vera kominn aftur í bílabransann. Ég er þakklátur fyrir traustið og hlakka til að taka við þessu hlutverki. Ég þekki starfsemina og umhverfið vel og er spenntur fyrir því að fá tækifæri til að taka þátt í að efla stöðu Mercedes-Benz vöru- og hópbíla meiri á Íslandi í góðu samstarfi við frábært starfsfólk Landfara,“
Ásgrímur Helgi